Íslenska útgáfan
Style SIAVEST er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL
1. Yfirvídd
89 (93) 97 (101) 105
2. Lengd á bol
49 (50,5) 52 (53,5) 54,5
Málin eru byggð á vestinu fyrir þvott, málin geta breyst eftir að vestið hefur verið þvegið.
Hæfni : Meðalþekking
Efni
Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðal lengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
Organic Merino DK: 3/3/3/3/4
Hringprjónar 70 cm 3,5 mm og 4 mm.
Hringprjón 40 cm 3,5 mm.
Saumnál, prjónamerki og öryggisnálar.
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 20 L og prj 29 umf á prj 4 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Vestið er prjónað neðanfrá og upp að bol í hring. Vestið er skipt upp í miðju við handakrika og aftur við hálsmál ,og prjónað fram og tilbaka. Stroffið fyrir hálsmáli, pífur og handakrikum er prjónað eftir að axlirnar hafa verið lykkjaðar saman.
Lesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu.
Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Merino DK.
top of page
kr 50,00Pris
Relaterede produkter
bottom of page