top of page
SOLEYSWEATER

Íslenska útgáfan

 

Style SOLEYSWEATER er prjónauppskrift.

 

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

 

Stærðartafla

 

Stærðir (cm)   XS    (S)    M     (L)     XL

1. Yfirvídd                       

101 (104) 107 (110 ) 113

2. Lengd á bol                                       

56  (58)   60  (60,5)  61

3. Lengd á ermum til handveg           

52 (52,5)  53 (53,5)  54

 

Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott, málin geta breyst eftir að peysan hefur verið þvegin. Hafið í huga að peysan á að vera víð í stærðum. Málið á yfirvídd yfir brjóstin er mæld eftir úrtöku á bolnum.

 

Hæfni: Meðalþekking

 

Efni

 

Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

 

Handlitið silkimohair frá Thelma Steimann, garnið er blanda af burstuðu 72% mohair og 28% silki , meðallengd ca. 420m/50gr í hverri hespu. Silkimjúk áferð og þægileg ull til að vinna með.

 

Organic merino litur 1: 3/4/4/4/5

Kid silk mohair litur 1: 1/1/1/2/2

Kid silk mohair litur 2: 2/2/2/3/3

 

Hringprjónar 80 cm 5 & 5,5 mm

Hringprjónar 40 cm 5 mm
5 x sokkaprjónar 4 mm

Saumnál til að fela enda

4 x öryggisnálar eða afgangsgarn til að geyma lykkjur.

Prjónamerki.

 

Prjónfesta

 

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 16 L og prj 21 umf á prj 5,5 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

 

Gott að hafa í huga

 

Peysan er prjónuð neðanfrá og upp i hring. Bolurinn og ermarnar eru prjónuð í sitthvoru lagi og tengd saman undir handakrikanum. Peysunni er deilt upp við berustykki, í fram - og bakhlið, og þar eftir er peysan prjónuð fam og tilbaka . Hliðarnar eru lykkjaðar saman við axlirnar Pífurnar á ermu- num og kraginn er prjónað eftir að peysan hefur verið lykkjuð saman á öxlunum. Peysan er prjónuð með tveimur þráðum í gegnum verkefnið, þ.e.a.s. 1 þræði af lit 1 (organic dk eða mohair) & 1 þræði af lit 2 (mohair).

 

Lesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu.

 

Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu prjónfestu og Organic Dk með silki mohair.

SOLEYSWEATER

kr 60,00Pris

    Relaterede produkter

    bottom of page