Íslenska útgáfan
Style DUNACARDIGAN er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL (XXL)
1. Yfirvídd
95 (98) 102 (108) 114 (120)
2. Lengd á bol
49 (51) 52,5 (53,5) 55 (55)
3. Lengd á ermum til handveg
49 (49,5) 51,5 (52) 52 (52)
4. Lengd á berustykki
24,5 (26) 27 (28) 30 (30)
Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott, málin geta breyst eftir að peysan hefur verið þvegin. Hafið í huga að peysan á að vera víð í stærðum.
Hæfni : Meðalþekking á prjónskap
Efni
Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðal lengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
Litur 1 (Aðallitur) : 3 (4) 4 (5) 5 (5)
Litur 2 (Aukalitur) : 1 (1) 1 (2) 2 (2)
Hringprjónar 4 mm í 40 & 80/100 cm.
Hringprjónar 3,5 mm in 40 & 60/80 cm.
5 x sokkaprjónar 3,5 mm.
Saumnál, 8 x prjónamerkingar og 2 x stórar öryggisnálar eða afgangsgarn til að geyma ermar.
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 21 L og prj 29 umf á prj 4 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð frá hálsmáli og niður, fitjað er upp fyrir hálsmáli og þar eftir kemur útaukning fyrir axlir. Peysan er svo prjónuð að handveg, þar sem búkur og ermar eru prjónuð í sitthvoru lagi.
Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Organic Merino DK . Litasamsetningin er ekki bindandi.
top of page
kr60.00Price
YOU MIGHT ALSO LIKE
bottom of page