top of page
MYLEOPARDSCARF

Íslenska útgáfan

 

Style MYLEOPARDSCARF er prjónauppskrift.

 

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

 

Hafið í huga að trefillinn er hannaður til að vera extra langur og djúsí. Það er auðvelt að stytta trefilinn með því að sleppa endurtekningum á mynstrinu.

 

Hæfni : Þekking á tvöföldu prjóni

 

Efni

 

Handlitið silkimohair frá Thelma Steimann, garnið er blanda af burstuðu 72% mohair og 28% silki , meðal lengd ca. 420m/50gr í hverri hespu. Silkimjúk áferð og þægileg ull til að vinna með.

 

Kid silk mohair litur 1 : 2

Kid silk mohair litur 2 : 2

 

Hringprjón 3,5 mm eða 2x 3,5 mm stakir prjónar ca. 35 cm.

Saumnál til að fela enda.
Færanlegt prjónmerki til að merkja réttuna.

 

Prjónfesta

 

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 13 L (samtals 26 L) , prjónið 26 umf af tvöföldu prjóni á prj 3,5 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prufan er of lítil, skiptið yfir á stærri prjóna.

Ef prufan er of stór, skiptið yfir á minni prjóna.

 

Gott að hafa í huga

 

Lesið vel í gegnum leiðbeiningar áður en hafist er á verkefninu
Trefillinn er prjónaður með tvöföldu prjóni, þ.e.a.s. bæði fram- og bakhliðin eru prjónaðar á sama tíma og á báðum hliðunum er slétt prjón.

MYLEOPARDSCARF

kr50.00Price

    YOU MIGHT ALSO LIKE

    bottom of page