top of page
BATIKSWEATER

Íslenska útgáfan

 

Style BATIKSWEATER er prjónauppskrift.

 

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

 

Size chart

 

Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL

1. Yfirvídd

101 (106) 111 (116) 121

2. Lengd á bol til handveg

31 (34) 37 (40) 43

3. Lengd á ermi til handveg

40 (41,5) 43 (45) 46


Málin eru byggð upp eftir peysum fyrir þvott ; peysan getur stækkað við þvott, fer allt eftir því hvernig hún er þveginn.

 

Hæfni : Meðal þekking a prjónskap

 

Efni

 

Organic Merino Aran frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðal- lengd ca. 166m/100g í hverri hespu.

Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

 

Litur 1: 1/1/1/1/1

Litur 2: 2/2/2/2/3

Litur 3: 2/2/2/2/2

Litur 4: 1/1/1/1/2

Litur 5: 2/2/2/3/3

 

Hringprjónar 40 og 80 cm í 5 mm og 6 mm.

4 – 5 stk sokkaprjónar í 5 mm.

Saumnál.
5 x öryggisnælur.

8 x prjónamerki.

 

Prjónfesta

 

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 19 L og prj 22 umf á prj 5,5 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

 

Gott að hafa í huga

 

Peysan er prjónuð neðanfrá og upp í hring. Bolurinn og ermarnar eru prjónað hvert fyrir sig og sameinað við berustykkið og þar eftir prjónað áfram í hring. Berustykkið er opnað fyrir hálsmálinu og þar eftir er berustykkið prjónað fram og tilbaka. Hálsmálið er prjónað með tvöföldu stroffi í hring og lykkjurnar eru felldar af frá bakhliðinni

 

Magn af efni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Merino Aran.

BATIKSWEATER

kr60.00Price

    YOU MIGHT ALSO LIKE

    bottom of page