top of page
NACRENECKWARMER

Íslenska útgáfan

 

Style NACRENECKWARMER er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

 

Stærðartafla

 

Stærð (cm) Ein stærð

1. Breidd  : 34 cm

2. Lengd : 34 (fram) 52 (bak) cm
3. Lengd á rúllukraga : 24 cm

 

Málin eru byggð á kraganum fyrir þvott, málin geta breyst eftir að kraginn hefur verið þveginn.

 

Hæfni : Meðalþekking

 

Efni

 

Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðal lengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

 

Organic DK: 3

 

Hringprjónn eða 2 x stakir prjónar í 3,5 mm.

Hringprjónar 40 cm í 3,5 mm.
Saumnál fyrir frágang.
4 x öryggisnælur.

 

Prjónfesta

 

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu.
Fitjið upp 36 L á prj 3,5 mm og prj ; 3 L sl, 3 L br, et út umf. Frá röngu prj ; 3 L br, 3 L sl og et út umf. Prj 29 umf fyrir10 x 10 cm prjónfestu.
Prjónfestan skreppur saman þegar prj er á þennan hátt, ekki teygja á prjónfestunni þegar málin eru tekin.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

 

Gott að hafa í huga

 

Kraginn er prjónaður fyrir fram og til baka , neðanfrá og upp að öxlum. Fram og bakhlið er prjónað hvert fyrir sig og tengt saman við axlir. Hálskraginn er prjónaður í hring eftir að fram og bakhlið hafa verið sameinaðar við axlir.

 

Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Organic merino DK.

 

Lesið vel í gegnum uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. Hægt er að nálgast hjálparvideo inná heimasíðunni www.thelmasteimann.com til að sjá hvaða aðferðir eru notaðar hverju sinni. Myndefnið liggur inn á heimasíðunni undir NACRENECKWARMER.

NACRENECKWARMER

kr40.00Price

    YOU MIGHT ALSO LIKE

    bottom of page