top of page
COUTURESCARF

Íslenska útgáfan

 

Style DUNACARDIGAN er prjónauppskrift.

 

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

 

Stærðartafla

 

Stærð (cm) Ein stærð

Lengd 208 cm

Breidd 53,4 cm

 

Hægt er að lengja eða stytta lengdina á treflinum við að bæta eða sleppa umferðum í munstrinu. Málin eru byggð upp á treflinum fyrir þvott, málin geta breyst eftir að trefillinn hefur verið þveginn.

 

Hæfni : Góð kunnátta

 

Efni

 

Merino sock frá Fru Valborg, garnið er handlitað og inniheldur 75% merino og 25% nylon. 425 m í 100g.

 

2x Cookies & cream

2x Oldtimer

2x Dust

2x Night watch

 

2x Prjónar 3,5 mm sirka 35 cm

Saumnál til að fela enda.

 

Prjónfesta

 

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en byrjað er á verkefninu.
Fitjið upp 13 L og prjónið 26 umf með tvöföldu prjóni á prjóna 3,5 mm fyrir 10 x 10 cm prufu. Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

 

Gott að hafa í huga

 

Trefillinn er prjónaður með tvöföldu prjóni samkvæmt munstri frá uppfitjun. Trefillinn getur verið lengdur eða styttur með því að bæta við eða sleppa úr umferðum í munstri. Hafið í huga að litirnir eru þeir sömu á báðum hliðum, þ.e.a.s. að þeir speglast ekki eins og vant er þegar prjónað er með tvöföldu prjóni.

 

Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Merino sock frá Fru Valborg . Litasamsetningin er ekki bindandi.

COUTURESCARF

kr50.00Price

    YOU MIGHT ALSO LIKE

    bottom of page