top of page
LOGOSWEATER

Íslenska útgáfan

 

Style LOGOSWEATER er prjónauppskrift.

 

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

 

Stærðartafla

 

 

Size chart

 

Stærðir (cm)  XS (S) M  (L ) XL  (XXL)

1. Yfirvídd

90  (96) 102  (108) 114

2. Lengd á bol til handveg

34 (36) 38 (40) 44 

3. Lengd á ermi til handveg

46 (48) 50 (52) 54

 

Hafið í huga að peysan er hönnuð til að vera yfir meðallagi í stærðum. Stærðirnar eru byggðar upp eftir málum fyrir þvott, peysan getur mögulega stækkað í málum eftir þvott, allt eftir því hvernig peysan er þvegin.

 

Hæfni : Meðal þekking a prjónskap


Efni
Gepardgarn Cottonwool 5 , 50% hreinn bómull og 50% extra fín merino ull.

 

599 (Svartur) : 5 (5) 6 (7) (7)

101 (Krem) : 5 (5) 6 (6) 6
805 (Lime grænn) : 2 (2) 2 (2) 2

158 (Brandý) : 2 (2) 2 (2) 2

 

Hringprjónar 40 og 70 cm í 3,5mm og 4,5mm.

Sokkaprjónar 4 – 5 stk ; 3,5mm og 4,5mm.

Saumnál og 4 x öryggisnælur.

 

Prjónfesta

 

10 x 10 cm = 19 L og 27 umf prj sl og br á prjóna 4,5 mm.
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef við á. Ef prufan er of lítil, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prufan er of stór, skiptið yfir á minni prjóna.

 

Gott að hafa í huga

 

Peysan er prjónuð á hringprjóna frá mitti og upp að hálsi. Bolur og ermar eru prjónaðar í sitthvoru lagi , tengjast saman við handveg og þar eftir prjónað saman upp að hálsmáli. Hafið í huga að snúa uppá garnið inn á bakhlið, ef löng skil eru á milli litaskipta í mynstri.

 

Magn af garni sem gefið er upp samkvæmt uppskrift er byggt upp á meðallagi, þar af leiðandi geta tölurnar verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Cotton wool 5, litasamsetningar eru heldur ekki bindandi.

 

Lesið vel í gegnum uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. Hægt er að nálgast hjálparvideo inná heimasíðunni www.thelmasteimann.com til að sjá hvaða aðferðir eru notaðar hverju sinni. Myndefnið liggur inn á heimasíðunni undir LOGOSWEATER.

LOGOSWEATER

kr60.00Price
    bottom of page