top of page
NACRECARDIGAN

Íslenska útgáfan

 

Style NACRECARDIGAN er prjónauppskrift.

 

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

 

Stærðartafla

 

 

Stærðir XS  (S) M (L) XL (XXL)

1. Lengd á bol að handvegi                                              

30   (31,5)   33   (34,5)  36  (36,5) 

2. Lengd á ermi að handvegi                                            

51    (53)   54,5   (56)    56,5  (56,5)

3. Yfirvídd yfir brjóst                                                          

91   (92,5)   94   (95,5)   97   (98,5) 

 

Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott, málin geta breyst eftir að peysan hefur verið þvegin. Hafið í huga að peysan er aðsniðin, en gefur eftir allt að 10 - 15 cm.

 

Hæfni : Meðalþekking á prjónskap

 

Efni

 

Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðal lengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

 

Organic merino: 4 (4) 4 (5) 5 (5)

 

Hringprjónar 4 mm í 40 & 80 cm fyrir bol og ermar

2 x sokkaprjónar 4 mm fyrir bönd

Saumnál til að fela enda

8 prjónamerki

2 x stórar öryggisnælur til að fela enda, eða afgangsgarn

 

Prjónfesta

   

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 21 L og prj 29 umf á prj 4 mm, prj stroff et; 3 L sl, 3 L br út umf. Þvoið prufuna fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.

Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.

Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

 

Gott að hafa í huga

 

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með laska útaukningu á berustykkinu. Peysan er prjónuð að mestu leiti frá réttunni og röngunni. Stroffið er byggt upp á 3 sléttum lykkjum og 3 brugðnum lykkjum, en þó aðeins mismunandi eftir stærðum. Fylgjið leiðbeiningum samkvæmt þeirri stærð sem prjónuð er, þegar fyrsta umferðin er prjónuð, svo að lykkjurnar séu settar upp í réttri röð. Berustykkinu er deilt upp í ermar og bol, og bolurinn er prjónaður áfram frá réttunni og röngunni, en ermarnar eru prjónaðar í hring. 

 

Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Organic Merino DK . 

NACRECARDIGAN

kr 60,00Price

    YOU MIGHT ALSO LIKE

    bottom of page